Sölu og þjónustusími  

Þann 10.febrúar 2011 opnaði heimasíða Efnalausna formlega.

Við vonum að hún verði viðskiptavinum og öðrum áhugasömum til gagns og fróðleiks

Fulltrúar Surfachem Ltd. sem er talsvert stór hráefnabirgi í Evrópu, komu í heimsókn til Efnalausna ehf að Keldnaholti í síðstu viku en Efnalausnir  nota m.a. hráefni frá Surfachem í framleiðslu sína. 

Ýmsar rannsóknir og samanburðarmælingar eru gerðar á gæðum efna frá Efnalausnum, samanborið við beztu efnin á markaðnum og eru mikilvægur hluti af rannsóknum og vöruþróun á okkar hreinsiefnum.  Óháðir aðilar voru m.a. fengnir til að prófa gæði efnanna og einnig fóru fram rannsóknir á tilraunastofu Efnalausna. 

Við hjá Efnalausnum viljum þakka þeim fjölmörgu aðilum og fyrirtækjum sem komu að prófunum á okkar efnum og unnu mjög óeigingjarnt starf. Þetta gerði það að verkum að við gátum þrautprófað vörurnar áður en ákvörðun var tekin um að þær færu í almenna notkun á markaðnum. Þessar góðu móttökur margra eru gott veganesti fyrir nýtt íslenskt fyrirtæki inn á markaðinn þar sem samkeppnin er hörð við m.a. mörg erlend hreinsiefni. All mörg fyrirtæki hafa í kjölfarið tekið efnin í notkun.

Til baka